Fermingar-Feykir kemur út í dag
Nýr og glæsilegur Feykir kemur út í dag, að þessu sinni tileinkaður fermingum. Blaðið verður dreift frítt í öll hús á Norðurlandi vestra og vonandi munu íbúar svæðisins njóta lestursins. Blaðið er einnig að finna hér á Feyki.is og opnast í allri sinni dýrð þegar smellt er á forsíðu þess hér til hægri.
Blaðið er stærra en venjulega og sneisafullt af viðtölum og umfjöllunum, auk fastra liða, t.d. er rætt við hjónin Jóhann Albertsson og Sigríði Lárusdóttur sem eru að opna veitingastaðinn Sjávarborg á Hvammstanga, spjallað er við Helgu Friðbjörnsdóttur í Varmahlíð sem hannar og saumar herraslaufur undir vörumerkinu HF Textíl og Einar Logi Þorvaldsson frá Sauðárkróki tískubloggari segir frá nýrri síðu sem nefnist Herratrend.is.
Guðmundur Hólmar Jónsson og Þórey Edda Elísdóttir á Hvammstanga ráðleggja öllum að prófa að flytja út á land í opnuviðtali blaðsins. Róbert Óttarsson segir frá glæstum breytingum á Sauðárkróksbakaríi og Binný í Blóma- og gjafabúðinni Sauðárkróki gefur heilræði fyrir fermingarveisluna.
Myndin sem prýðir blaðið er tekin af Davíð Má Sigurðssyni af fjórum fræknum fermingakrökkum; Ívari Elí Guðmundssyni, Eysteini Ívari Guðbrandssyni, Rebekku Ósk Rögnvaldsdóttur og Dagmar Lilju Hreiðarsdóttur. Það var Jónína Róbertsdóttir hjá Klippiskúrnum sem hafði veg og vanda af hárgreiðslum Ívars, Rebekku og Dagmarar. Thelma Sif Magnúsdóttir hjá Sif snyrtistofu sá um förðun stúlknanna.
Þetta er bara brot af innihaldi blaðsins - vonandi verða íbúar ánægðir með blaðið!