Fermingarblað Feykis á vefnum
feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla
28.03.2014
kl. 11.36
Nýjasta tölublað Feykis sem kom út í gær en það er sérstaklega tileinkað fermingum. Blaðinu var dreift frítt inn á öll heimili á Norðurlandi vestra og er hægt að skoða vefútgáfu þess hér til hægri með því að smella á forsíðu blaðsins.
Í blaðinu má lesa ýmis viðtöl og fleiri fasta þætti Feykis en fermingum eru jafnframt gerð góð skil í blaðinu. Þá er spjallað við nokkur fermingarbörn af Norðurlandi vestra, Fröken Fabjúlöss fer yfir það sem er helst í tísku hjá fermingarstelpum og –strákum. Binný í Blóma- og gjafabúðinni gefur góð ráð fyrir veisluna og nokkrir prestar rifja upp skemmtileg gullkorn frá fermingarbörnum.
Sjón er sögu ríkari - hér er Fermingarblað Feykis.