Festu bíl sinn á Stórasandi
Erlendir ferðamenn festu bíl sinn á Stórasandi sl. þriðjudag og óskuðu þeir eftir aðstoð. Voru þeir að koma frá Arnarvatni á Arnarvatnsheiði og var ferðinni heitið í Vatnsdal. Húni.is greinir frá þessu.
Björgunarsveit frá Siglufirði var á hálendisvaktinni og var hún stödd á Hveravöllum þegar þeim barst aðstoðarbeiðnin. „Vel gekk að losa bílinn og fóru björgunarmenn í samfloti með erlendu ferðamönnunum niður að Grímstungu í Vatnsdal en þangað var komið um klukkan 20,“ segir á Húna.is
Björgunarsveitin frá Siglufirði hélt svo aftur upp á Kjalveg og til Hveravalla og mun hún standa hálendisvaktina til föstudags.