Feyki og Sjónhorni ekki dreift utan Sauðárkróks í dag
Vegna ófærðar í Skagafirði og víðar verða engir póstbílar á ferðinni í dag og því verður Feyki og Sjónhorni ekki dreift utan Sauðárkróks í dag.
Þar sem veðurútlitið er ekki gott fyrir daginn gæti útburður einnig tafist á Sauðárkróki en foreldrar munu meta það með útburðarbörnum hvort Feykir eða Sjónhorn komi inn um lúguna hjá áskrifendum.