Feykir í 30 ár – Ert þú áskrifandi ?

Sunnudaginn 10. apríl verða 30 ár síðan héraðsfréttablaðið Feykir kom út í fyrsta sinn. Að útgáfunni stóðu ungir ofurhugar sem vildu efla frjálsa og óháða umræðu í héraði. Nú þrjátíu árum síðar kemur blaðið enn út vikulega og áskrifendahópurinn er öflugur.

Í tilefni tímamótanna kom í gær út veglegt afmælisblað sem dreift er inn á öll heimili á Norðurlandi vestra. Er það von okkar sem að blaðinu stöndum að þið njótið blaðsins og eins minnum við ykkur sem ekki eruð nú þegar áskrifendur að án áskrifenda getur blaðið ekki lifað.

Áskriftasíminn er 4557171

Fleiri fréttir