Feykir í páskafríi í dymbilvikunni

Nýr Feykir lítur dagsins ljós í dag og er hann stútfullur af skemmtilegu og áhugaverðu efni úr Norðurlandi vestra. Blaðið verður svo í páskafríi í næstu viku en vikuna þar á eftir verður Feykir þó fyrr á ferðinni en vanalega og kemur út þriðjudaginn 22. apríl.

Blaðið verður þá með stærra sniði og verður tileinkað atvinnulífssýningunni Lífsins gæði og gleði og jafnframt upphafi Sæluvikunnar.

Þess má geta að Feykir.is verður ferskur á netinu í næstu viku, líkt og alltaf.

Fleiri fréttir