Feykir skoðar ferðasumarið á Norðurlandi vestra

Ferðasumarið á Norðurlandi vestra er þema Feykis sem kemur út í dag. Þar er spjallað við ýmsa aðila í ferðaþjónustugeiranum, skoðaðir helstu viðburðir sumarsins, hvað er nýtt á söfnum og setrum svæðisins, tillögur að dagsferðum eða sunnudagsrúntum fyrir fjölskyldufólk og margt fleira.  

Meðal annars er rætt við ferðaþjónustubændurna í Dæli í Víðidal en þar standa tvær kynslóðir að starfseminni, þau Sigrún B. Valdimarsdóttir, Víglundur Gunnþórsson, Kristinn Rúnar og Hallfríður Sigurbjörg Óladóttir.

Einnig er rætt við Önnu Lilju Pétursdóttur í Varmahlíð sem var að opna nýja ferðaskrifstofu í Skagafirði, North West Adventures. Hjónin Eddu Brynleifsdóttur og Þorstein Hafþórsson sem leiðsegja veiðimönnum um vötn Austur-Húnavatnssýslu. Sömuleiðis Stefán Örn Þórisson um Pure Nature Travel, nýopnaða ferðaskrifstofu í A-Hún.

Spjallað er við Evelyn Ýr Kuhne um Ferðaþjónustuna á Lýtingsstöðum sem fagnar 15 ára starfsafmæli um þessar mundir, Einar Rúnar Ísfjörð, nýjan stöðvarstjóra Staðarskála, sem segist spenntur að koma aftur heim í sveitina sína og Sigríður Káradóttir hjá Gestastofu sútarans hvetur fólk til að láta drauma sína rætast.

Þetta og margt fleira má finna í Ferða Feyki sem kom út í dag en blaðið má jafnframt skoða frítt á netinu með því að smella á forsíðu blaðins hér til hægri.

Fleiri fréttir