Fimbulkuldi á Hveravöllum

Fimbulkuldi mældist á Hveravöllum í nótt, eða um 34°c. Lætur það nærri kuldametum frá því mælingar hófust, en 37.9°c hafa lengst af staðið sem lágmarksmet. Er sú mæling frá Möðrudal á Fjöllum síðan 21. janúar 1918, það er frá frostavetrinum mikla.

Sigurður Kristjánsson, veðurathugunarmaður á Grímsstöðum á Fjöllum skynjaði mikilvægi augnabliksins og las hann því lágmarkið með óvenju mikilli nákvæmni sem -38,9°C. Danska veðurstofan bætir síðan hinni venjulegu 1 gráðu við og fær út -37,9°C og það hefur lengst af staðið sem íslenskt lágmarksmet. Vel má vera að það sé nákvæmlega rétt, að því er segir í grein eftir Trausta Jónsson á vef Veðurstofu Íslands.

Eftir 1918 hefur hiti á veðurstöð aldrei farið niður fyrir -35°C, svo segja má að mælingin á Hveravöllum í nótt hafi fallið ansi nærri því að vera met. Á sjálfvirku stöðvunum hjó þó nærri á Neslandatanga við Mývatn er hiti þar fór niður í -34,7°C rétt eftir miðnætti 7. mars 1998. Lægsti hiti 21. aldarinnar til þessa er -30,7°C sem mældust við Setur sunnan Hofsjökuls 23. desember 2004. Lægsti hiti aldarinnar nýju á mannaðri stöð, -30,5°C, mældist í Möðrudal 25. janúar 2002. Ekki er marktækur munur á tölunum tveimur.

Fleiri fréttir