Fimm af sjö skólum á NLV í skólahreysti

Skólahreysti hefur fest sig í sessi hjá grunnskólum landsins og nú eru undanriðlarnir framundan. Keppnin hefst á morgun kl. 13:00 þegar Norðurlandsriðilinn fer fram í íþróttahöllinni við Skólastíg á Akureyri. Af tuttugu skólum sem taka þátt í riðlinum eru fimm af Norðurlandi vestra.

Á Akureyri verður keppt í tveimur riðlum, skólar utan Akureyrar keppa sér og skólar frá Akureyri og nágrenni keppa sér. Riðlarnir verða keyrðir samhliða og hvor riðill fær sinn sigurvegara.

Keppt verður á Egilsstöðum 20. mars, Kópavogi 26. og 27. mars og úrslitin verða í Laugardalshöllinni 15. maí þar sem tólf lið keppa til úrslita. Fyrsta keppnin í Skólahreysti fór fram vorið 2005 þegar sex skólar tóku þátt en vinsældir hennar uxu fljótt og í ár eru 113 skólar sem taka þátt. Landsbankinn er aðal bakhjarl keppninnar að þessu sinni en hún er nú haldin í tíunda sinn.

Búnir verða til fimm sjónvarpsþættir um riðlana tíu í keppninni og verða þeir allir sýndir í apríl á föstudagskvöldum á fjölskylduvænum tíma. Það er ánægjuleg nýjung að fá þessa þætti sýnda á föstudagskvöldum. Gert er ráð fyrir að þeir verði sýndir kl.19:30 –strax eftir Kastljós

Sagt er frá þessu á heimasíðu Sveitarfélagsins Skagafjarðar og heimasíðu Skólahreystis.

Fleiri fréttir