Fimm Neistafélagar luku knapamerki 4
Í vikunni luku fimm félagsmenn í hestamannafélaginu Neista á Blönduósi prófi í knapamerki 4, en þetta var í fyrsta skipti sem það var kennt á staðnum. Kennari í vetur var Sonja Noack og prófdómari sem fyrr var Helga Thoroddsen, höfundur knapamerkjanna, segir á vef hestamannafélagsins Neista.
Knapamerkin hafa verið kennd á Blönduósi frá árinu 2007 eða þegar knapamerkjabækurnar voru gefnar út. Þá hófu fjórir unglingar nám og kláruðu knapamerki 3 á þrem vetrum en fóru svo burtu í framhaldsnám. Aðsóknin hefur alltaf verið góð en fyrstu árin var einungis kennt upp í knapamerki 3 því þá fóru unglingarnir að heiman í framhaldsnám og því lítill grundvöllur fyrir að kenna tvö síðustu merkin.
Nú í vetur voru hins vegar þeir fullorðnu sem áður höfðu stundað nám í knapamerkjum 1, 2 og 3 og voru tilbúnir til að fara í 4. Það gerðu fjórir fullorðnir og einn unglingur sem kláraði líka knapamerki 3 í fyrra. Þau ætluðu sér að taka knapamerki 4 á tveim árum en ákváðu á vordögum að vinna vel í vor og fara í próf sem þau og gerðu og náðu öll. Sá elsti er 67 ára og sá yngsti 16 ára.