Fimm sýningar Sirkus Íslands á Blönduósi

Sirkus Íslands verður á Húnavöku á Blönduósi dagana 16. – 19. júlí. Sirkusinn hélt sína fyrstu sýningu á Vestmannaeyjum um síðustu helgi og er nú í Reykjavík. Sirkusinn býður upp á þrjár gerðir sýninga fyrir fólk á öllum aldri og kemur hann fimm sinnum fram á Blönduósi.

Sýningarnar þrjár eru; Heima er best sem hentar öllum frá 5 ára aldri og þolinmóðum yngri krökkum. Sýningin er tveir tímar með kortérs hléi.  Þar er grippl, húlla, loftfimleikar, einhjólalistir og svo margt fleira er sett saman svo úr verður sannkölluð sirkusupplifun, með öllu sem tilheyrir sirkustöfrunum.

S.I.R.K.U.S. er fyrir yngstu áhorfendurna, en þó ekki á kostnað eldri áhorfenda. Hún er klukkutími og er miðuð við þriggja til tíu ára. Hún er styttri en Heima er best og er hugljúf, stutt og í henni er örlítill söguþráður. Ýmsar litríkar persónur sem börnin þekkja geta birst á sviðinu og jafnvel tekist á loft – og bófi reynir að stela senunni.

Skinnsemi er kabarettsýning fyrir fullorðna með sirkusívafi. Sýningin er ekki fyrir viðkvæma – en er sannarlega fyrir víðsýna. Sýningin er bönnuð innan 18 ára og hefur sirkusinn vínveitingaleyfi á þessum sýningum. Innblástur er sóttur í burlesque- og vaudeville-sýningar þriðja og fjórða áratugarins, en formið var endurvakið á tíunda áratugnum í Bandaríkjunum. Loftfimleikar, eldur, jafnvægislistir, fjaðrir, tónlistaratriði, lista- og lostamenn, húllahringir, trúðslæti…. og allt fullorðins, samkvæmt vef Sirkus Íslands.

Sýningar á Blönduósi;

  • Fimmtudaginn 16. júlí kl. 16:00 – Heima er best
  • Föstudaginn 17. júlí kl. 20:00 – Skinnsemi
  • Laugardaginn 18. júlí kl. 12:00 – Heima er best
  • Laugardaginn 18. júlí kl. 23:00 – Skinnsemi
  • Sunnudaginn 19. júlí kl. 11:00 - S.I.R.K.U.S.

Mbl.is kom við á Miklatúni á dögunum þegar verið var að reisa tjaldið og tók sjónvarpsviðtal við Lee Nelson sirkusstjóra um sumarið. Fram kemur að vel á þriðja tug starfsmanna ferðast um landið með sirkusnum í sumar en nú er komið við á fleiri og minni stöðum. Búið er að betrumbæta fullorðinssýningu hópsins og erlendir skemmtikraftar eru nú fleiri.

Hægt er að nálgast miða á Miði.is.

Fleiri fréttir