Fimmgangur í kvöld

Í kvöld fer fram annað keppniskvöld í KS-Deildinni í Reiðhöllinni Svaðastöðum á Hofsósi og hefst keppni kl. 20:00.

Reiknað er með spennandi keppni og þess má geta að af átján hrossum sem skráð eru til keppni eru þrettán fyrstu verðlauna hross. Hin fimm eru öll reynd keppnishross. Aðstandendur keppninnar vonast eftir sem flestum áhorfendum á pallana til að hvetja sín lið, eins og fram kemur í fréttatilkynningu frá Meistaradeild Norðurlands.

Fleiri fréttir