Sautján verkefni frá Norðurlandi vestra fengu styrk úr húsafriðunarsjóði

Silfrastaðakirkja stendur nú fyrir framan Trésmiðjuna Ýr á Sauðárkróki þar sem verið er að gera hana upp. Mynd:PF
Silfrastaðakirkja stendur nú fyrir framan Trésmiðjuna Ýr á Sauðárkróki þar sem verið er að gera hana upp. Mynd:PF

Alls bárust 241 umsókn um styrk úr húsafriðunarsjóði árið 2024. Veittir voru styrkir til 176 verkefna. Úthlutað var 297.600.000 kr., en sótt var um ríflega 1,3 milljarð króna. Sautján verkefni frá Norðurlandi vestra fengu styrk og var heildarupphæðin 27.2 millj. kr. hæsti styrkurinn fór til Skagafjarðar en það var Silfrastaðakirkja (fjórar millj.) sem hefur verið í uppgerð á Sauðárkróki síðan í október 2021. Næst hæsti styrkurinn var 3 m.kr., Sýslumannshúsið við Aðalgötuna á Blönduósi og verkefnin Torfhús í Húnavatnssýslum og Fornverkaskólinn: viðhald handverkshefða fengu bæði 2,5 m.kr.

Friðlýstar kirkjur

Auðkúlukirkja 541 Blönduósi - 900,000
Gamla kirkjan á Blönduósi - 500,000
Holtastaðakirkja 541 Blönduósi - 2.000,000
Silfrastaðakirkja 561 Varmahlíð - 4.000,000
Þingeyraklausturskirkja 541 Blönduósi - 500,000

Friðuð hús og mannvirki

Gamla sæluhúsið, Hveravöllum 540 Blönduósi - 1.400,000
Gamli læknabústaðurinn 540 Blönduósi - 1.000,000
Gamli Spítali Blönduósi 540 Blönduósi - 1.200,000
Kúlukvíslarskáli, Auðkúluheiði 540 Blönduósi - 900,000
Óspakseyri, kaupfélagshús, Bitrufirði 500 Staður - 1.500,000
Pétursborg, Brimslóð 2-6, Blönduósi 540 Blönduósi - 1.500,000
Sýslumannshúsið, Aðalgata 6, Blönduósi  - 3.000,000

Önnur hús og mannvirki

Hús Sigurðar Pálmasonar, Brekkugata 2, 531 Hvammstanga. - 1.000,000
Norðurbraut, vegasjoppa, Hvammstanga 530 Hvammstanga - 800.000
Tyrfingsstaðir á Kjálka í Skagafirði - 561 Varmahlíð - 2.000.000

Rannsóknir og húsakannanir

Fornverkaskólinn: viðhald handverkshefða - 2.500.000
Torfhús í Húnavatnssýslum - 2.500.000

Nánar um úthlutunina er hægt að skoða á hér

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir