Fimmtíu ára fermingarafmæli á Skagaströnd

Laugardaginn 27. ágúst sl. kom saman á Skagaströnd sjö manna hópur af þeim tólf sem fermdust á hvítasunnudag 1961. Þann dag fyrir fimmtíu árum var fínt veður og presturinn var að sjálfsögðu hinn mæti maður sr. Pétur Þ Ingjaldsson.

 

Frá þessu er sagt á vef Skagastrandar en þar kemur fram að af þessum tólf fermingarsystkinum er einn látinn, Búi Birgisson sem lést 18. sept. 2009 og var hans minnst sérstaklega. Fermingarhópurinn hefur hist nokkrum sinnum á þessum 50 árum, síðast fyrir fimm árum á Skagaströnd. Ýmislegt var gert sér til ánægju þennan dag, hús og stofnanir skoðaðar en nokkur hús hafa tekið breytingum bæði að útliti sem innra starfi. Eftir góðan dag fóru fermingarsystkinin ásamt mökum sínum í Kántrýbæ þar sem snæddur var góður matur, rifjaðir upp gamlir og nýir tímar og kynnin endurnýjuð.

Sjá nánar á Skagaströnd.is

Fleiri fréttir