Fimmtungur bíla á ónýtum dekkjum

Af 101 bíl sem kom í tjónaskoðunarstöð VÍS fyrstu átta vikur ársins reyndust 13% á sumardekkjum, 28% á negldum dekkjum og 59% á vetrar- eða heilsársdekkjum. Á fimmtungi bíla voru dekkin of slitin til að heimilt væri að aka á þeim, þ.e. dýpt mynstursins var innan við 1,6 millimetrar, segir í tilkynningu frá VÍS.

Í janúar bárust félaginu yfir 100 tilkynningar um aftanákeyrslur en bil á milli bíla, háll vegur, slæmt skyggni, athygli ökumanns, hraði og  ástand dekkja eru allt þættir sem hafa sitt að segja í aftanákeyrslum.

„Á hálum vegi og í slæmu skyggni skapast ytri aðstæður sem krefjast þess að ekið sé af enn meiri varfærni en ella. Hinir þættirnir, bil á milli bíla, athygli, hraði og ástand dekkja eru aftur á móti alfarið undir ökumönnum komnir. Með góðum dekkjum, réttum loftþrýstingi og reglulegri tjöruhreinsun eykst öryggi dekkjanna,“ segir á heimasíðu VÍS.

„Dekkin eru eini snertiflötur bílsins við veginn og mikilvægt eftir því að þau séu fullnægjandi. Miða þarf tegund dekkja við árstíma og þær aðstæður sem ekið er við. Á lélegum dekkjum lengist stöðvunarvegalengdin, meiri hætta er á að missa stjórn á bílnum og meiri líkur er á að hann fljóti upp á blautum vegi. Bílbelti auka einnig öryggið í aftanákeyrslum og rétt stilltur höfuðpúði skiptir höfuðmáli til að minnka líkur á hálsáverkum.“

Nánari upplýsingar um dekk, dekkjaskipti og merkingar dekkja er að finna á vis.is.

Fleiri fréttir