Fín opnun í Víðidalsá

Víðidalsá opnaði fyrir laxveiði síðastliðinn föstudag. Eftir tvær vaktir voru níu stórlaxar komnir á land og veiddust þeir víðsvegar um ána. Laxarnir sem komu á landi voru allir á bilinu 80-85 sentímetrar að lengd og var þeim öllum sleppt enda sleppiskylda á stórlaxi í Víðidalnum. Sagt er frá þessu á vef Lax-á.is.

Þar kemur fram að Harðeyrarstrengur, Efri Garðar, Ármót og Laxapollur hafi allir gefið fiska og er víst talsvert af laxi í Laxapolli. Skilyrði til laxveiða hafa verið nokkuð erfið, hiti ekki nema um 5 gráður og norðanáttin leikur við menn og málleysingja. Það þarf því að hafa talsvert fyrir hverjum lönduðum laxi, segir á vef Lax-á.is.

/Húni.is

Fleiri fréttir