Fín veðurspá fyrir helgina

Það ætti ekki að væsa um heimamenn og gesti sem heimsækja Skagafjörðinn þessa helgina. Bæjarhátíðin Hofsós heim hófst í gær þó Sóli Hólm hafi tekið forskot á sæluna sl. fimmtudagskvöld þegar fullt var út úr dyrum á uppistandi hans í Höfðaborg. Uppselt var á seinna standið hans í gærkvöldi fyrir löngu en dagskrá Hofsósinga er stútfull af alls konar oh heldur fjörið áfram í dag. Þess má geta að í ár eru 30 ár frá fyrstu Jónsmessuhátíðinni á Hofsósi. Á Króknum fer síðan af stað Króksmót ÓB á laugardagsmorgni og stendur fram á sunnudag.
Skagafjörður skartaði sínu fegursta nú um miðnætti og sólroðinn var ægifagur. Veður var stillt, aðeins öldugjálfur í fjörunni og fuglasöngur.
Veðurstofan gerir ekki ráð fyrir bongóblíðu í dag en mögulega á sunnudaginn. Veður verður í rólegri kantinum en gert er ráð fyrir örlítilli norðanátt og 13-14 stiga hita á Norðurlandi vestra. Það er reiknað með rigningu um kvöldmatarleytið en á sunnudaginn er ekki ólíklegt að sólin láti sjá sig og spáð er allt að 16 stiga hita og norðangolu.
Já, ef eitthvað er að marka spána þá verður hlýjast á landinu í Skagafirði á sunnudaginn.