Firmakeppni Hvatar í knattspyrnu
Fyrirhugað er að halda firmakeppni Hvatar í knattspyrnu föstudaginn 30. Desember nk., ef næg þátttaka fæst. Áætlað er að mótið hefjist kl. 18:00 og er þátttökugjaldið kr. 8.000 á lið. Skráningar skulu berast á netfangið eysteinnp@simnet.is fyrir 28. desember.
Knattspyrnudeild Hvatar hvetur fyrirtæki og einstaklinga til að taka sig saman og skrá sig til leiks.