Fitubrennslunámskeið hjá Erlu Jakobs

Nýtt fitubrennslunámskeið hefst á morgun, fimmtudaginn 12. apríl en þar fara fram æfingar með eigin líkamsþyngd. „Hörkupúl, brjáluð brennsla og skemmtilegur félagsskapur. Þetta getur ekki klikkað,“ segir í fréttatilkynningu sem birt er á Húna.is.  

Brynhildur Erla Jakobsdóttir hefur umsjón með námskeiðinu og fer það fram í íþróttahúsinu á Blönduósi. Sama fyrirkomulag verður á þessu námskeiði og því sem var að ljúka, þ.e. þrisvar í viku; mánudaga kl. 20-21, miðvikudaga og fimmtudaga kl. 19-20.

Námskeiðinu lýkur fimmtudaginn 10. maí  en um er að ræða 12 skipti og verð er 10.000 kr. Námskeiðið er bæði fyrir konur og karla. Skráning á telma@fitubrennsla.is.

Fleiri fréttir