Fjalla Eyvindur í Eyvindarstofu

Kómedíuleikhúsið frá Ísafirði sýnir leikritið Fjalla Eyvindur í uppfærslu Elvars Loga Hannessonar í  Eyvindarstofu á Blönduósi laugardaginn 22. febrúar kl. 20:00.

Fjalla-Eyvindur er án efa frægasti útilegumaður allra tíma hér á landi. Enda var kappinn sá í útlegð í eina fjóra áratugi. Hann var í raun einfaldur sveitapiltur en þótti samt strax í föðurgarði öðruvísi en jafnaaldrar sínir. Hann var mikill hæfileikamaður smiður góður, fimur mjög og meira að segja læs. Einnig þótti hann eigi ómyndarlegur. Samt varð hann að halda á fjöll eftir að hafa verið grunaður um þjófnað. Já, aðeins grunaður aldrei var neitt sannað. Svo kynnist hann henni Höllu sinni. Hér er þessi þekkta saga túlkuð á nýjan, óvæntan og líklega soldið kómískan máta. 

Miði á sýninguna ásamt þriggja rétta máltíð á Potturinn Restaurant er á 5900 kr. annars er inngangseyrir 2.000 kr. Borðapantanir í síma 453 5060 eða á netfangið pot@pot.is.

Heimild: Glugginn og Kómedía.is

 

Fleiri fréttir