Fjárfest fyrir hundruði milljóna á Hveravöllum
Á vef RÚV í gær kom fram að fjárfestingar fyrir nokkur hundruð milljónir stæðu fyrir dyrum á Hveravöllum. Húnavatnshreppur, sem er aðaleigandi Hveravallafélagsins ehf., hefur samið við Iceland Excursions Allrahanda ehf. um uppbyggingu ferðaþjónustu á staðnum.
Þórir Garðarsson, stjórnarformaður Hveravallafélagsins, segir í samtali við Ríkisútvarpið að góð upplifun sé meðal annars tryggð með tillitsemi við umhverfið. „Það er fyrst og fremst gert með því að þarna séu merktar gönguleiðis og góðir göngustígar auk þess sem mikilvægt er að viðkvæm svæði séu ekki troðin út. Algjört forgangsatriði er að náttúran verði ekki verri heldur en við komum að henni,“ segir hann.
Meðal annars á að byggja nýjan fjallaskála fyrir allt að 70 manns, útbúa gönguleiðir og nýtt tjaldsvæði. Núverandi húsakynni verða rifin eða færð og ný reist fjær hverasvæðinu. Eitt af markmiðum framkvæmdanna er að tryggja jákvæða upplifun ferðamanna af svæðinu.
„Okkur er mikið í mun um að friðlandið verði verndað eins og kostur er. Það er aðalaðdráttaraflið, segull Hveravalla. Ef hann er ekki til staðar er einfaldlega ekki grundvöllur fyrir því að reka hér starfsemi,“ segir Þórir.