Fjárhagsáætlun 2014 fyrir Húnavatnshrepp samþykkt
Gert er ráð fyrir 2,4 m.kr. afgangi af rekstri Húnavatnshrepps á næsta ári samkvæmt fjárhagsáætlun 2014 sem samþykkt var á hreppsnefndarfundi í síðustu viku. Áætlað er að tekjur munu hækka um 14,5 m.kr. og að rekstrargjöld muni hækka um 15,2 m.kr. Ekki er gert ráð fyrir að ný lán verði tekin á árinu.
Fjárhagsáætlunin vegna ársins 2014 er að grunni til byggð á bókfærðri stöðu og áætlun fyrra árs, með viðaukum. Í forsendum hennar er gert ráð fyrir að launaliðir hækki að jafnaði um 5,6% frá fyrra ári og aðrir rekstrarliðir um 3%.
Áætlað er að tekjur A og B hluta hækki um 14,5 m.kr. frá fyrra ári og verði alls um 343 m.kr. Gert er ráð fyrir að rekstrargjöld án fjármagnsliða hækki um 15,2 m.kr. og verði rúmar 334 m.kr. Tekjur skiptast þannig að skatttekjur eru áætlaðar 54,8%, aðrar tekjur 16,2% og framlög Jöfnunarsjóðs 29%.
Rekstrarafgangur A og B hluta fyrir fjármagnsliði er áætlaður um 8,5 m.kr. og að teknu tilliti til fjármagnsliða er rekstrarafgangur áætlaður um 2,4 m.kr. Í áætlun um sjóðstreymi er gert ráð fyrir að veltufé frá rekstri verði 14,8 m.kr.
Framkvæmdir eru áætlaðar við gluggaskipti í Húnavallaskóla, endurbætur á kennsluálmu og heimilisfræðistofu, ofnakerfi í matsal, tækjakaup, vöktunarkerfi við sundlaug og frágangi við bílaplön, samtals að upphæð 12,5 m.kr. Ekki mun vera gert ráð fyrir lántökum á árinu í fjárhagsáætlun Húnavatnshrepps fyrir árið 2014. Sagt er frá þessu á Húnahorninu og heimasíðu Húnavatnshrepps.
