Fjárhagsáætlun Húnavatnshrepps fyrir 2013 samþykkt

Húnavatnshreppur samþykkti fjárhagsáætlun sína fyrir árið 2013 á fundi sínum þann 13. desember sl. Í fjárhagsáætluninni er gert ráð fyrir 12.381 þús. hagnaði að teknu tilliti til fjármagnsliða. Heildartekjur A og B hluta eru áætlaðar 357.814 þús. og rekstrargjöld A og B hluta eru áætluð 338.813 þús. Hagnaður fyrir fjármagnsliði er áætlaður 19.001 þús.

Í áætlun um sjóðsteymi er gert ráð fyrir að veltufé frá rekstri verði 18.276 þús. Að teknu tilliti til fjárfestinga og fjármögnunarhreyfinga er gert ráð fyrir að handbært fé hækki um 14.599 þús.

Í greinagerð með fjárhagsáætluninni segir að áætlunin sé að grunni til byggð á bókfærðri stöðu og áætlun ársins 2012, með viðaukum. Í forsendum fjárhagsáætlunar er gert ráð fyrir 4,5% hækkun rekstrarliða frá fyrra ári.

Þar kemur einnig fram að rekstur sveitarfélagsins hefur verið erfiður undanfarin ár vegna tekjulækkana. Munar þar mest um lækkun á framlögum Jöfnunarsjóðs sem lækkuðu um 37 % milli árana 2008 og 2012. Í áætluninni er gert ráð fyrir að framlög Jöfnunarsjóðs lækki frá fyrra ári um rúmar 3 millj. Hækkanir á útsvarstekjum og fasteignagjöldum vega að nokkru leyti upp lækkanir Jöfnunarsjóðs á tímabilinu.

Lækkun tekna hefur  einnig verið mætt með aðhaldi og hagræðingu í rekstri sveitarfélagsins, auk þess sem óhjákvæmilegt hefur verið að hækka ýmis þjónustugjöld til að ná fram auknum tekjum málaflokka, segir í greinagerðinni. Þrátt fyrir að í forsendum áætlunar sé gert ráð fyrir 4,5% hækkun rekstarliða, er áætlað að rekstur málaflokka lækki um 2,7 millj. frá fyrra ári, eða um 1%.

Gert er ráð fyrir framkvæmdum við skólahúsnæði, Húnaver og bílaplön.  Áætlað er að selja hluta Reykjajarðarinnar.  Ekki er gert ráð fyrir lántökum á árinu.

Fleiri fréttir