Fjárhagsáætlun Skagastrandar samþykkt

Fjárhaghagsáætlun Skagastrandar fyrir árið 2013 -2016 var samþykkt á fundi sveitarstjórnar sem fór fram þann 5. desember sl. Í fundargerð kemur fram að í rekstrarreikningi og rekstraryfirliti áætlunar 2013 kemur fram að heildartekjur samstæðu eru áætlaðar 480.658 þús., þar af eru skatttekjur 317.283 þús. og rekstrartekjur 163.375 þús.

Rekstrargjöld eru áætluð 458.159 þús. þar af kostnaður vegna launa áætlaður 245.969 þús. Rekstrarniðurstaða fyrir fjármagnsliðið er áætluð jákvæð um 2.109  þús. en heildarniðurstaða að teknu tilliti til fjármagnsliða verði jákvæð um 7.204 þús.

Í sjóðstreymi áætlunar er gert ráð fyrir að veltufé frá rekstri samstæðu verði jákvætt um 46.952 þús. Samanlagðar fjárfestingahreyfingar eru áætlaðar 84.644 þús. Að teknu tilliti til fjárfestinga og fjármögnunarhreyfinga er áætlað að handbært fé lækki um 46.692 þús.

Fleiri fréttir