Fjárhagsáætlanir Skagastrandar samþykktar
Sveitarfélagið Skagaströnd samþykkti fjárhagsáætlun sveitarfélagsins fyrir árin 2016 og 2017 -2019 á fundi sínum 14. desember sl. Í fundargerð kemur fram að gert er ráð fyrir jákvæðri rekstrarniðurstöðu í áætlun næsta árs um rúmar 9 milljónir króna. Í rekstraryfirliti áætlunar 2016 kemur fram að heildartekjur samstæðu eru áætlaðar 561 milljónir kr., þar af eru skatttekjur tæpar 392 milljónir kr. og rekstrartekjur rúmar 170 milljónir kr. Rekstrargjöld eru áætluð tæpar 566 milljónir kr., þar af kostnaður vegna launa áætlaður tæpar 242 milljónir kr.
Í fundargerð segir að í sjóðstreymi áætlunar sé gert ráð fyrir að veltufé frá rekstri samstæðu verði jákvætt um rúmar 59 milljónir kr. Samanlagðar fjárfestingahreyfingar eru áætlaðar tæpar 53 milljónir kr. Að teknu tilliti til fjárfestinga og fjármögnunarhreyfinga er áætlað að handbært fé lækki um rúmar 3,5 milljónir kr. og handbært fé verði í árslok tæpar 596 milljónir kr. Í áætlun áranna 2017-2019 er gert ráð fyrir jákvæðri rekstrarniðurstöðu samstæðu öll árin.