„Fjarlægðin við fólkið og kjördæmið reyndist erfið“

Gunnar Bragi Sveinsson Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Mynd/BÞ
Gunnar Bragi Sveinsson Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Mynd/BÞ

Síðustu ár hafa verið umhleypingasöm í stjórnmálasögu Íslands og óhætt að segja að pólitíska landslagið sé gjörólíkt því sem áður var. Gunnar Bragi Sveinsson hefur verið í þungamiðju þessara breytinga frá því hann settist á þing fyrir Norðvesturkjördæmi árið 2009 og hefur síðan þá gegnt tveimur ráðherraembættum. Gunnar Bragi settist niður með blaðamanni Feykis á fallegum laugardegi á Króknum og sagði frá því hvernig neistinn fyrir pólitíkinni kviknaði snemma á lífsleiðinni og þeim stóru verkefnum sem hann hefur haft með höndum í sínu starfi sem þingmaður og ráðherra.

„Ég segi gjarnan að ég hefi verið viðloðandi pólitík síðan ég var sex eða sjö ára. Það var alltaf mikið rætt um stjórnmál á heimilinu og í stórfjölskyldunni var blanda af Sjálfstæðisfólki, Alþýðuflokksfólki og Framsóknarmönnum. Pabbi var alltaf að aðstoða Stefán Guðmundsson þingmann í kosningum. Ég man fyrst eftir mér sex eða sjö ára hlaupandi með nafnalista yfir þá sem kusu, úr Safnahúsinu yfir í gamla Iðnaðarmannahúsið við hliðina á Framsóknarhúsinu. Síðan þá held ég að það hafi ekki verið kosningar sem ég hef ekki tekið þátt í,“ rifjar Gunnar Bragi upp.

Í viðtalinu segist Gunnar Bragi ánægður með vistaskiptin, úr Utanríkisráðuneytinu yfir í Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið. „Ég sé auðvitað eftir ákveðnum verkefnum og frábæru starfsfólki hjá Utanríkisráðuneytinu. Ég kem aftur á móti inn í mjög spennandi ráðuneyti þar sem lifibrauð okkar Íslendinga er undir, þ.e. sjávarútvegur og landbúnaður, og svo þeim stóra málaflokki sem er byggðamál. Þar tekur við mér gott starfsfólk og ég er að kynnast málefnunum betur.“ 

Viðtalið í heild sinni má lesa Feyki vikunnar.

Fleiri fréttir