Fjármálaráðstefna sveitarfélaga

Árleg fjármálaráðstefna sveitarfélaga er á Hilton Reykjavík Nordica hóteli við Suðurlandsbraut í Reykjavík í dag og á morgun.Ráðstefnan hefst klukkan tíu í morgun með ræðu formanns Sambands íslenskra sveitarfélaga, Halldórs Halldórssonar.

Klukkan 13:00 ávarpaði fjármála- og efnahagsráðherra, Bjarni Benediktsson, ráðstefnuna og í beinu framhaldi mun Þóra Arnórsdóttir dagskrárgerðarmaður stýra samtali ráðherrans og formanns sambandsins um fjárhagsleg samskipti ríkis og sveitarfélaga.

Á ráðstefnunni verða flutt erindi um margvísleg efni sem snúa að fjármálum og stjórnsýslu sveitarfélaga. Fjallað verður um afkomu sveitarfélaganna 2012, fjármálareglur sveitarfélaga, efnahagshorfur, stefnumótun ríkis og sveitarfélaga um upplýsingasamfélagið 2013–2016 og rafræna stjórnsýslu.

Á morgun, föstudag, verður ráðstefnan tvískipt í A og B hluta. Í hvorum hluta fyrir sig verður umfjöllum um ýmsa þætti í rekstri sveitarfélaga.

Fleiri fréttir