Fjölbrautaskólanemendur skemmta sér í kvöld
Árshátíð Nemendafélagsins FNV verður haldin í kvöld á Sal skólans og verður hún íburðarmikil að vanda og mun andi Nýju Jórvíkur svífa yfir vötnum. Boðið verður upp á glæsilegt hlaðborð og fjölbreytta skemmtidagskrá undir styrkri veislustjórn Auðuns Blöndal.
Árhátíðin er lokapunktur Opnu daganna sem hafa verið í gangi í vikunni en þar hefur margt skemmtilegt verið í boði eins og t.d. leiklistarnámskeið, ljósmyndanámskeið, reiðnámskeið, árshátíðarundirbúningur og fleira.
Húsið opnar kl. 19:00 og miðaverð er 3.800 kr. fyrir meðlimi NFNV en 4.500 kr fyrir aðra.