Fjölbreytt dagskrá á Sögulegri safnahelgi

Um næstu helgi verður svokölluð Söguleg safnahelgi, dagana 8.-9. október, í tengslum við verkefnið Huggulegt haust sem er á vegum ferðaþjónustuaðila á Norðurlandi vestra, ásamt söfnum og setrum á svæðinu. Með verkefninu er vonast til að vekja sérstaka athygli á því sem svæðið hefur upp á að bjóða á haustin.

Í tengslum við Huggulegt Haust hefur verið lögð sérstök áhersla á að kynna þær hefðbundnu fjár- og stóðréttir sem fóru víða fram um helgar í september og október. Söfn og setur á svæðinu hafa einnig tekið höndum saman og ákveðið að taka þátt í verkefninu. Þá verður bætt við haustopnunartímann og með opnu húsi og sérstakri dagskrá hjá fjölmörgum söfnum og setrum á Hvammstanga, Laugarbakka, Blönduósi, Skagaströnd og í Skagafirði. Með þessu verður fram framboð afþreyingar fjölbreyttara og ættu allir að finna sér eitthvað við hæfi. Þeir sem heimsækja að minnsta kosti fjögur söfn geta átt von á að vinna til glæsilegra vinninga.

Þau söfn sem taka þátt í safna- og setrahelginni á Norðurlandi vestra eru:

  • Árnes, elsta hús á Skagaströnd
  • Byggðasafn Skagfirðinga, Glaumbæ
  • Byggðasafn Húnvetninga og Strandamanna á Reykjum í Hrútafirði
  • Eyvindarstofa, Pottinum á Blönduósi
  • Grettisból á Laugarbakka
  • Hafíssetrið á Blönduósi
  • Heimilisiðnaðarsafnið á Blönduósi
  • Kántrýsetrið á Skagaströnd
  • Kvennaskólinn á Blönduósi
  • Langafit-handverkshús á Laugarbakka
  • Nes Listamiðstöð á Skagaströnd
  • Selasetur Íslands á Hvammstanga
  • Háskólasetrið í Kvennaskólanum á Blönduósi
  • Rannsóknarsetur HÍ á Norðurlandi vestra á Skagaströnd
  • Spákonuhof á Skagaströnd
  • Textílsetur Íslands á Blönduósi
  • Verslunarminjasafnið á Hvammstanga
  • Þingeyrarkirkja

 

Á heimasíðunni huggulegthaust.is má finna nánari upplýsingar um opnunartíma og dagskrá safna og setra á Norðurlandi vestra um næstu helgi. Verkefnið er unnið í samstarfi við SSNV atvinnuþróun og styrkt af Menningarráð Norðurlandi vestra.

Fleiri fréttir