Fjölbreytt námskeið í gangi hjá Farskólanum
Það er mikið um að vera hjá Farskólanum þessa dagana, að sögn Halldórs Gunnlaugssonar verkefnastjóra þar. Tveir hópar nýfarnir af stað í Skrifstofuskóla sem kenndur er á dagtíma, annar fyrir hádegi og hinn eftir hádegi.
Í vikunni kláraðist svo Skrifstofuskóli sem byrjaði í haust og tveir hópar í Nám og þjálfun í almennum bóklegum greinum eru í gangi á kvöldin. · Öll þessi stærri námskeið, svokallaðar námsleiðir FA, eru fjarkennd á milli þéttbýlisstaða á Norðurlandi.
Þá eru ýmis tómstundanámskeið farin á fullt. Búið er að halda eitt bjórnámskeið, námskeið í Skapandi skrifum og sagnamennsku er hafið og á föstudag og laugardag verður haldið námskeiðið Lesið í skóginn – tálgað í tré, en enn hægt að bæta við fólki á það. Þá er að sögn Halldórs verið að skipuleggja stórt námskeið fyrir ferðaþjónustuaðila.