Fjölbreytt úrval lengri námsleiða
Vetrarstarf Farskólans er nú að fara í fullan gang og er búið að auglýsa fjölbreytt úrval lengri námskeiða. M.a. verður boðið upp á nám í Almennum bóklegum greinum, Skrifstofuskólann og Menntastoðir.
Námskeið í Almennum bóklegum greinum sem hófst á vorönn hefst aftur 9. september. Einnig eru hafnar skráningar á nýtt námskeið í Almennum bóklegum greinum sem hefst einnig á haustönn og lýkur í maí á næsta ári. Nám og þjálfum í almennum bóklegum greinum er 300 kennslustunda nám og ætlað þeim sem orðnir eru 23 ára og vilja taka fyrstu áfangana í íslensku, ensku, stærðfræði og dönsku. Námið er hannað fyrir þá sem stefna að því að ljúka sveinsprófi í einhverri ákveðinni iðngrein.
Skrifstofuskólinn hefst 16. september næstkomandi. Markmiðið með námi í Skrifstofuskólanum er að námsmenn efli sjálfstraust sitt og öryggi til faglegra starfa á skrifstofu. Námsmenn auka færni sína í bókhaldi, tölvum, og ensku og í því að veita fyrsta flokks þjónustu. Gert er ráð fyrir að þátttakendur séu orðnir 20 ára og hafi stutta formlega skólagöngu að baki.
Menntastoðir eru nýtt námsframboð hjá farskólanum. Um er að ræða krefjandi nám fyrir einstaklinga sem eru 23 ára og eldri. Er það unnið í samstarfi við Fræðslumiðstöð atvinnulífsins og Keili og er samtals 660 kennslustundir.Meðal markmiða með Menntastoðum er að komast í undirbúningsdeildir háskóla og þjálfa markviss og skipulögð vinnubrögð í námi.