Fjölbreytt vetrarstarf að hefjast
Nú er að hefjast fjölbreytt vetrarstarf hjá Austur-Húnavatnsdeild Rauða kross Íslands og á Húna.is kemur fram að er leitað eftir áhugasömum sjálfboðaliðum sem hefðu áhuga á því að starfa með deildinni við m.a. fatasöfnun, fatamarkað, heimsóknarvini, skyndihjálp og neyðarvarnaráætlun svæðisins. Hægt er að hafa samband við sjálfboðaliða í stjórn deildarinnar og fá frekari upplýsingar.
Á Húna.is segir að frá 5.- 6. október næstkomandi er landsöfnun RKÍ „Göngum til góðs“ þar sem öll framlög verða nýtt til að hjálpa börnum í neyð. Þeir sem hafa áhuga á að leggja góðu málefni lið og vilja taka hressandi göngutúr á föstudag eða laugardag eru beðnir um að skrá sig á heimasíðu RKÍ. Einnig er hægt að hafa samband við neðanskráða sjálfboðaliða og fá aðstoð við að skráninguna.
„Undanfarin ár höfum við verið með fatasöfnunargáma þar sem íbúar Austur Húnavatnssýslu hafa verið ótrúlega öflugir við að styrkja starf RKÍ með framlögum og kunnum við ykkur bestu þakkir fyrir, ykkar framlag er ómetanlegt. Til að tryggja að fatnaðurinn nýtist sem best biðjum við ykkur um að ganga frá fatnaði í poka og loka þeim vel. Þeir sem vilja gefa fatnað eða aðra nytjavöru beint til deildarinnar er bent á að hafa samband við okkur,“ segir í fréttatilkynningu.
Allir sem hafa áhuga á að starfa með deildinni eru hvattir til að hafa samband. „Um leið viljum við þakka velvilja og góðan stuðning á liðnum árum,“ segir loks í fréttatilkynningu.
Anna Kr. Davíðsdóttir akd@simnet.is Sími: 691-7256
Hafdís Vilhjálmsdóttir hafdisv@lv.is Sími: 892-7106
Einar Óli Fossdal einar@hsb.is Sími: 899-6428
Hrefna Aradóttir handverk@simnet.is Sími: 860-2066
Kristín Ingibjörg Lárusdóttir kristinlar80@hotmail.com Sími: 691-8686
Rannveig Lena Gísladóttir rannveiglena@gmail.com Sími: 893-0816
Unnur Arnardóttir fremstagil@simnet.is Sími: 899-3596
Valgeir M. Valgeirsson valval@simnet.is Sími: 892-6651
