Fjöldi á folaldasýningu Neista

Góð þátttaka var á folaldasýningu sl. sunnudag í Arnargerði á Blönduósi, bæði hvað varðar folöld og áhorfendur eftir því sem kemur fram á heimasíðu hestamannafélagsins Neista. Helstu ræktendur á svæðinu voru mættir með yfir þrjátíu folöld og gekk sýningin vel. Dómarinn Eyþór Einarsson valdi bestu folöldin og áhorfendur einnig í hvorum flokki og voru áhorfendur sammála dómara um efsta sætið í báðum flokkum.

Úrslit urðu þessi:

Hestar:

  • 1. Ljósvíkingur frá Steinnesi, leirljós
  •     F: Óskasteinn frá Íbishóli
  •     M: Djörfung frá Steinnesi
  •     Rækt. og eig.: Magnús Jósefsson
  • 2. Leiknir frá Blönduósi , brúnn
  •     F: Viti frá Kagaðarhóli
  •     M: Sandra frá Hólabaki
  •     Rækt.: Björn Magnússon og Hrímahestar ehf
  •     Eig.: Hrímahestar ehf
  • 3. Fannar frá Blönduósi, brúnskjóttur
  •     F: Toppur frá Auðsholtshjáleigu
  •     M: Ungfrú Ástrós frá Blönduósi
  •     Rækt. og eig.: Sigríður Grímsdóttir og Eyjólfur Guðmundsson

 

  • 4. Frosti frá Geitaskarði, grár
  •     F:  Kvartett frá Túnsbergi
  •     M: Röskva frá Geitaskarði
  •     Rækt.: Sigurður Örn Levy og Sigurður Örn Ágústsson
  •     Eig.: Gjón Gunnarsson

 

  • 5. Sjóður frá Steinnesi, grár
  •     F: Spuni frá Vesturkoti
  •     M: Muska frá Sigríðarstöðum
  •     Rækt. og eig.: Magnús Jósefsson

 

Hryssur:

  • 1. Þrúður frá Skagaströnd, brún
  •     F: Þröstur frá Hvammi
  •     M: Þjóð frá Skagaströnd
  •     Rækt. og eig.: Þorlákur Sveinsson og Lalli ehf

 

  • 2. Björk frá Grænuhlíð, brún
  •     F: Víðir frá Prestbakka
  •     M: Þruma frá Grænuhlíð
  •     Rækt. og eig.: Ásmundur Óskar Einarsson

 

  • 3. Limra frá Blönduósi, rauðskjótt
  •     F: Kapall frá Kommu
  •     M: Hrifning frá Árgerði
  •     Rækt. og eig.: Ásgeir Blöndal og Hrímahestar ehf

 

  • 4. Sigurrós frá Hólabaki, bleikálótt
  •     F: Fróði frá Staðartungu
  •     M: Sigurdís frá Hólabaki
  •     Rækt. og eig.: Björn Magnússon

 

  • 5. Fenja frá Skagaströnd, rauðstjörnótt
  •     F: Styrmir frá Skagaströnd
  •     M: Milljón frá Skagaströnd
  •     Rækt.: Jón Heiðar Jónsson
  •     Eig.: Jón Heiðar Jónsson og Aron Logi Svavarsson

 

Stórræktendurnir Magnús Jósefsson og Þorlákur Sveinsson unnu því folatollana sem í boði voru.

Fleiri fréttir