Fjöldi lítilla gististaða er á skrá á Norðurlandi vestra

Hótel Varmahlíð er einn af stærri og rótgrónari gististöðum á Norðurlandi vestra. Mynd: KSE
Hótel Varmahlíð er einn af stærri og rótgrónari gististöðum á Norðurlandi vestra. Mynd: KSE

Hjá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands vestra eru 134 gististaðir á skrá. Flestir þeirra eru smáir, eða 84 af þessum 134 og fá þeir skoðun annað hvert eða jafnvel fjórða hvert ár. Þar er m.a. um að ræða litla gistiskála og gistiheimili án veitingasölu, heimagistingu og minni fjallaskála.

Það heyrir til undantekninga að verið sé að selja gistingu í óleyfi. Það er helst í Skagafirði, þar sem að nýir aðilar án leyfis hafa birst á Airbnb vefnum upp á síðkastið. Ljóst er að mikil eftirspurn er eftir gistingu í Skagafirði í tengslum við Landsmót Hestamanna sem haldið verður að Hólum dagana 27. júní til 3. júlí nk. og eru greinilega margir sem hyggjast bjóða upp á húsaskjól gegn greiðslu. Heilbrigðiseftirlitið hvetur þá nýliða sem ekki hafa aflað sér tilskyldra leyfa að drífa í því. Þetta kemur fram í nýrri frétt á vef Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra.

Fleiri fréttir