Fjölmenni í góðri göngu í Trölla

Hópurinn sem tók þátt í göngunni í Trölla. Mynd: Ágúst Guðmundsson.
Hópurinn sem tók þátt í göngunni í Trölla. Mynd: Ágúst Guðmundsson.

Ferðafélag Skagfirðinga stóð í gær fyrir göngu frá Kálfárdal í Trölla. Þátttaka var með allra mesta móti, 32 göngugarpar á öllum aldri tóku þátt. Veðrið lék við þátttakendur og friðsælt umhverfið skartaði sínu fegursta. Að sögn Ágústs Guðmundssonar, formanns Ferðafélags Skagfirðinga var þessi ganga sú næst fjölmennasta sem hann man eftir á vegum félagsins.

Lagt var upp frá bænum Kálfárdal, þar sem gott bílastæði, afgirt þannig að hestar komast ekki að bílunum. Þaðan var gengið fram dalinn undir leiðsögn Ágústs, sem sagði frá helstu örnefnum og staðháttum. Leiðin er um 5,7 km hvora leið og fremur lítil hækkun. Stór hluti hennar er eftir vegaslóða og síðan kindagötum, svo þetta er þægileg leið sem flestir ættu að geta gengið.

Eftir að hafa áð um stund í Trölla, skála Ferðafélags Skagfirðinga sem var fluttur að Tröllabotnum árið 1984, var haldið á vit ævintýranna. Rétt við skálann er nefnilega foss sem hægt er að ganga á bak við og voru margir sem prófuðu það. Vakti tiltækið mikla kátínu þrátt fyrir að sumir vöknuðu aðeins.

Á fésbókarsíðu áhugaljósmyndarans Róbert Daníels Jónssonar á Blönduósi eru fleiri myndir úr ferðinni.

Fleiri fréttir