Fjórðungsmót hafið á Kaldármelum
Fjórðungsmót á Kaldármelum hófst í dag með forkeppnum í nokkrum flokkum og kynbótadómum á hryssum. Það eru hestamannafélögin á Veturlandi sem standa fyrir mótinu og einnig mæta til keppni hestamannafélögin á Norðvesturlandi. Skagfirsk og húnvetnsk hestamannafélög eiga fjölda keppenda á mótinu. Það ku ríkja góð stemming og sól og blíða á mótsstað.
Hægt er fylgjast með mótinu á fésbókarsíðu Fjórðungsmóts Vesturlands. Skagfirðingar og Húnvetningar eiga þar sigurstranglega keppendur og má m.a. nefna að Ísólfur Líndal Þórisson, Þyt, er efstur í B. Flokki gæðinga eftir 15 af 45 hrossum og Ásdís Ósk Elvarsdóttir, Stíganda, er efst eftir forkeppni í tölti 17 ára og yngri.