Fjórir sóttu um Skagaströnd

Fjórir umsækjendur eru um embætti sóknarprests í Skagastrandarprestakall í Húnavatns- og Skagafjarðarprófastdæmi. Embættið veitist frá 1. ágúst nk. Umsækjendur eru:

Arnaldur Máni Finnsson,cand. Theol., séra Bryndís Valbjarnardóttir, Elvar Ingimundarson mag.theol. og Ólöf Margrét Snorradóttir, cand. Theol. Biskup skipar í embættið að fenginni umsögn valnefndar. Valnefnd skipa níu manns úr prestakallinu auk  prófasts í Húnavatns- og Skagafjarðarprófastdæmi.

Starfandi sóknarprestur er Bryndís Valbjarnardóttir sem sinnir embættinu í afleysingu fyrir Ursulu Árnadóttur sem nú hefur látið af störfum.

Fleiri fréttir