Fjórtán hljóta styrk úr Húsafriðunarsjóði

Úthlutað var úr Húsafriðunarsjóði sl. mánudag. Veittur var styrkur til 224 verkefna samtals að upphæð 139.140.000 kr., þar af til 14 verkefna á Norðurlandi vestra samtals upphæð 8.450.000. Sótt var um rúmlega 843 milljónir króna til 309 verkefna.

Húsafriðunarsjóður veitir styrki til viðhalds og endurbóta á friðlýstum og friðuðum húsum og mannvirkjum. Sjóðnum er einnig heimilt að veita styrki til viðhalds annarra mannvirkja sem hafa menningarsögulegt, vísindalegt eða listrænt gildi. Einnig ber sjóðnum að stuðla að byggingarsögulegum rannsóknum, þar með talið skráningu húsa og mannvirkja, og miðlun upplýsinga um þær.

Styrkt voru eftirfarandi verkefna á Norðurlandi vestra:

Friðlýstar kirkjur:

  • Auðkúlukirkja, Húnavatnshreppi 500 þús.kr.
  • Gamla Blönduóskirkja við Brimslóð 800 þús.kr.
  • Hofskirkja, Hofsósi 2,5 milljónir
  • Hofsstaðakirkja Syðri Hofdalir, Skagafirði 600 þús.kr.
  • Reynistaðarkirkja, Skagafirði 300 þús.kr.

Friðuð hús og mannvirki:

  • Tilraun við Aðalgötu 10, Blönduósi 300 þús.kr.
  • Geitaskarð í Húnavatnshreppi 250 þús.kr.
  • Læknishúsið Sauðárkróki 700 þús.kr.
  • Tyrfingsstaðir, Skagafirði 700 þús.kr.
  • Þorljótsstaðir Vesturdal, Skagafirði 400 þús.kr.
  • Hraunshúsið, Hrauni í Fljótum 300 þús.kr.

Önnur hús og mannvirki:

  • Norðurbraut Syðsti-Hvammur, Hvammstanga 200 þús.kr.

Byggða- og húsakannanir:

  • Húsa- og byggðakönnun í Húnavatnshreppi 500 þús.kr.
  • Húsakönnun á Blönduósi 400 þús.kr.

Fleiri fréttir