Fjörutíu prósent látinna ekki með belti

Vísir greinir frá því í dag að á tímabilinu 2000 til 2009 létust 225 manns í 190 umferðarslysum á Íslandi. Algengustu dánarorsakir voru lífshættulegir áverkar á höfði og brjóstholi. fjórðungur á aldrinum 16 til 25 ára.

Fjórðungur látinna var á aldrinum 16 til 25 ára. Sextíu og átta prósent þeirra sem létust voru karlmenn og nítján prósent voru undir áhrifum vímuefna. Tæp fjörutíu prósent af þeim sem létust í umferðarslysum voru beltislaus.

Þetta kemur fram í rannsókn Kára E. Þórðarsonar, þriðja árs læknanema, sem unnin var úr gögnum rannsóknarnefndar umferðarslysa.

Fleiri fréttir