Flateyjarbók komin heim
Það var söguleg stund á Þingeyrum í Húnaþingi, föstudaginn 31. maí sl., þegar Guðrún Nordal, forstöðumaður Stofnunar Árna Magnússonar og Steinunn Sigurðardóttir hönnuður afhentu heimamönnum Flateyjarbók til varðveislu og sýningarhalds. Fyrir hönd heimamanna tóku Björn Magnússon, formaður sóknarnefndar Þingeyraklausturskirkju og Ingimundur Sigfússon, eigandi Þingeyra, á móti handritinu.
Í ár eru liðin 350 ár frá fæðingu Árna Magnússonar handritasafnara og í tilefni þess gengst Stofnun Árna Magnússonar, í samvinnu við heimamenn, fyrir sýningum á sex stöðum á landinu þar sem komið verður fyrir vönduðum endurgerðum handrita sem tengjast viðkomandi svæði ásamt fróðleik um efni þess. Með því er minnt á þá staðreynd að handritin sem söfnuðust til Kaupmannahafnar á 17. öld komu hvaðanæva að af landinu og eru vitnisburður um fjölbreyttan menningararf Íslendinga frá fyrri öldum.
Nokkrum einstaklingum var boðið að „fóstra“ handritin sem í hlut eiga; sá heimsækir Árnastofnun og handritafræðingur kynnir honum handritið, útlit þess, sögu og efnið sem það hefur að geyma. „Fóstran“ fer svo heim í hérað með endurgerð handritsins afhendir heimamönnum. Kom Flateyjarbók í hlut Steinunnar Sigurðardóttur fatahönnuðar.
Við athöfnina flutti Guðrún Nordal erindi um Flateyjarbók og tilurð hennar, Hugrún Sif Hallgrímsdóttir og Lillý Rebekka Steingrímsdóttir léku á þverflautu og Steinunn Sigurðardóttir afhenti handritið. Ingimundur Sigfússon stjórnaði athöfninni og þakkaði fyrir hönd heimamanna. Að lokum var viðstöddum boðið í kaffi.
Flateyjarbók var sett saman að beiðni stórbóndans Jóns Hákonarsonar í Víðidalstungu í Húnaþingi vestra. Hún er að mestu skrifuð á árunum 1387-1394, e.t.v. á Þingeyrum, af prestunum Jóni Þórðarsyni og Magnúsi Þórhallssyni sem einnig myndskreytti bókina fagurlega. Flateyjarbók er stærst íslenskra miðaldahandrita en við gerð hennar voru notaðar húðir af 113 kálfum. Noregskonungasögur mynda uppistöðu bókarinnar en frásögnin berst víða um Norður-Atlantshaf, allt til Vínlands. Árið 1647 eignaðist Brynjólfur biskup Sveinsson handritið og hann gaf það Friðriki 3. Danakonungi 1656. Handritið kom heim 21. apríl 1971 ásamt Konungsbók eddukvæða en sá viðburður markaði upphaf afhendingar handrita úr dönskum söfnum.
Flateyjarbók verður til sýnis í Klausturstofu á Þingeyrum í sumar en þar verður opið alla daga frá kl. 10.00 – 17.00.
.
/Fréttatilkynning