Fleiri útlendingar heimsóttu Hafíssetrið í ár
Miðvikudaginn 31. ágúst var síðasti opnunardagur Hafíssetursins á Blönduósi sumarið 2011.
Um það bil 1250 gestir heimsóttu Hafíssetrið í sumar og er það nokkur fækkun frá undanförnum árum. Í ár er fyrsta árið þar sem útlendingar voru fleiri en Íslendingar og voru Þjóðverjar í meirihluta erlendra gesta.
Stjórn Hafíssetursins þakkar gestum kærlega fyrir komuna. Hafíssetrið verður opið um safnahelgi á Norðurlandi vestra þann 8. – 9. október en opnar svo að nýju næsta vor.
Drög af dagskrá fyrir safnahelgi má sjá á huggulegthaust.is, en Hafíssetrið mun standa m.a. fyrir leiðsögn um gamla bæinn á Blönduósi.
Ef áhugi er fyrir hendi að heimsækja Hafíssetrið yfir veturinn er hægt að hafa samband með tölvupósti á netfang hafis@blonduos.is