Flestir vegir orðnir greiðfærir
feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla
04.02.2014
kl. 13.07
Samkvæmt vef Vegagerðarinnar eru nú flestir vegir á Norðurlandi vestra orðnir greiðfærir. Þannig er greiðfært allt frá Hrútafirði á Skagaströnd og einnig frá Blönduósi um Vatnsskarð og allt á Sauðárkrók. Frá Sauðárkróki í Fljót er hálka og sömuleiðis í Út-Blönduhlíð.
Verið er að moka Þverárfjall og Öxnadalsheiði, en þar var ófært í gær.