Flóamarkaður í Skagabúð
Í tilefni af sumarkomu ætlar Kvenfélagið Hekla að vera með Flóamarkað sumardaginn fyrsta, fimmtudaginn 19. apríl nk., frá kl. 14-17 í Skagabúð. „Til sölu allt á milli himins og jarðar. Sjón er sögu ríkari,“ segir í auglýsingu í nýjasta eintaki Gluggans.
Þar verður boðið upp á ný-steikar vöfflur með rjóma og kaffi á 500 kr. en frítt fyrir 5 ára og yngri. Vakin er athygli á því að enginn posi er á staðnum.