Flokkur heimilanna býður fram í Norðvesturkjördæmi
Flokkur heimilanna tilkynnti framboð sitt á blaðamannafundi sl. mánudag undir bókstafnum X-I til næstu Alþingiskosninga. Á heimasíðu flokksins kemur fram að flokkur heimilanna vilji heiðarlegt og gegnsætt uppgjör við fortíðina og hrunið og aðdraganda þess.
„Hann er flokkur samhyggðar, réttlætis, jafnræðis og frelsis á jafnréttisgrundvelli. Hann er flokkur allra heimila landsins og mun standa vörð um hag og hagsæld hvers heimilis. Leiðrétta skal stökkbreytt lán á húsnæði landsmanna og afnema skal verðtryggingu af nýjum húsnæðislánum. Breyta þarf íbúðalánakerfinu og stuðla að nýrri eignamyndun heimila,“ segir á heimasíðunni.
Flokkur heimilanna býður fram í öllum kjördæmum og kynnti hverjir verða frambjóðendur í þremur efstu sætum listanna á blaðamannafundinum. Á fundinum var stefnuskrá Flokks heimilanna kynnt af varaformanni flokksins Ingu Karen Ingólfsdóttir og formanni flokksins Pétri Gunnlaugssyni ásamt frambjóðendum og fulltrúum nokkurra þeirra hópa sem að Flokki heimilanna standa.
Í þremur efstu sætum í Norðvesturkjördæmi eru:
Pálmey Gísladóttir Lyfjatæknir
Ingólfur V. Ingólfsson Véltæknif. / MBA og Vélstjóri
Gunnar Páll Ingólfsson Kjötiðnaðarmeistari
Þeir flokkar, hópar og samtök sem standa að stofnun Flokks heimilanna eru m.a. eftirfarandi:
Lýðveldisflokkurinn
Samtök fullveldissinna
Áhugahópur um tjáningafrelsi
Sjálfstæðir Sjálfstæðismenn
Þjóðarflokkurinn
Áhugahópur úr Hagsmunasamtökum heimilanna
Áhugafólk um kjör aldraðra og öryrkja.
Fyrrum félagar úr Samstöðu