Flotinn streymir til Reykjavíkur
Öðruvísi er nú um að litast í Reykjavíkurhöfn en áður, enda er höfnin hratt að fyllast af fiskiskipum. Tilefnið er samstöðufundur sjávarútvegsins sem haldinn verður á Austurvelli kl. 16 í dag. Fundurinn er haldinn til að hvetja Alþingismenn til að hlusta á sjónarmið sjávarútvegsins og hafa samvinnu við greinina og sérfræðinga á sviði sjávarútvegsmála við að leiða til lykta deilur um fiskveiðistjórnun og veiðigjöld.
Eins og sjá má á meðfylgjandi mynd streymdu skipin til hafnar í morgun þegar myndin hér að ofan var tekin. Von var á mörgum skipum til Reykjavíkur eftir því sem leið á daginn, segir á heimasíðu LÍÚ.