Flott dagskrá menningarkvölds

Frá menningarkvöldi NFNV 2011. Mynd: fnv.is
Frá menningarkvöldi NFNV 2011. Mynd: fnv.is

Menningarkvöld NFNV verður haldið á morgun, föstudaginn 7. október. Atburðurinn fer fram í íþróttahúsinu á Sauðárkróki og hefst kl: 20:00 en húsið opnar 19:30.

Að sögn Matthildar Kemp Guðnadóttur formanns nemendafélagsins er dagskrá kvöldsins mjög flott: „Kynnir kvöldsins er Sóli Hólm, einnig verður hann með uppistand. Emmsjé Gauti syngur nokkur lög, félagar úr Íslenska dansflokknum koma og sýna dans, ofurkrútturnar Ragnhildur Sigurlaug og Sigurbjörg Svandís syngja, söngatriði frá nemendum í skólanum, Body Paint og Drag Show.“

Allir eru velkomnir á viðburðinn, miðaverð er 2500 kr. fyrir meðlimi FNV og 3000 kr. fyrir aðra.

Fleiri fréttir