Flottar hugmyndir kvikna í Frumkvöðlasmiðju

Í dag var kynning á verkefnum þeirra aðila sem sóttu Frumkvöðlasmiðju fyrir atvinnuleitendur, en kynningin var haldin í Eyvindarstofu á Blönduósi. Vinnumálastofnun stóð fyrir smiðjunni, ásamt Farskólanum, miðstöð símenntunnar á Norðurlandi vestra en leiðbeinandi var G. Ágúst Pétursson.

Að sögn Ágústs fer mikil skapandi vinna fram í Frumkvöðlasmiðjunni og allir eru virkjaðir til að taka þátt og hvattir áfram. Þar fær fólk leiðbeiningar um hvernig á að gera góða heimasíðu með einföldum hætti, hanna kynningarbæklinga, gera skoðanakannanir og fleira. Hann segir að markmiðið sé að fólk öðlist meira sjálfstraust og trú á sjálfu sér að loknu námskeiði og sé þar með reiðubúnara til að takast á við hin ýmsu verkefni.

Að þessu sinni var um að ræða þriggja vikna námskeið en Ágúst hefur verið að halda samskonar námskeið á vegum Vinnumálastofnunar á Vesturlandi og Símenntunarmiðstöðvarinnar á Vesturlandi. „Ég hef haldið 14 frumkvöðlasmiðjur sl. þrjú ár og ég er virkilega ánægður með afraksturinn að þessu sinni. Þarna komu margar flottar hugmyndir upp á yfirborðið. Ég tel að þarna séu komnir allavega tveir ef ekki þrír vísar að nýjum fyrirtækjum. Það var ótrúlegt hve mikill árangur náðist á svona skömmum tíma.“

Fjölbreyttar og flottar hugmyndir

Þátttakendur kynntu hugmyndir sínar fyrir gestum og gangandi í Eyvindarstofu og voru þær sex talsins. Ein hugmyndin var að stofna hestaleigu á Blönduósi, Hestaleiguna Galsa, en engin slík er til á svæðinu og er sá rekstur að fara af stað.

Önnur hugmynd voru Dagsbolir hans Dags Bjarna Kristinssonar, og eru áletraðir bolir fyrir hin ýmsu tilefni. Því verkefni hefur þegar borist pantanir fyrir Laxasetrið á Blönduósi. Einnig var til kynningar hugmynd um ferðaþjónustu á gistiskálanum Áföngum á Kjalvegi. Hugmyndasmiðurinn, Anna Aspar, hefur sótt um rekstur skálans og bíður svars um það hvort hugmynd hennar fái að verða að veruleika.

Einn aðili vildi gera upp Hótel Blöndu og annar vildi gera upp svæðið umhverfis Brimslóð og gera það aðlaðandi fyrir ferðamenn, ásamt því að gera úrbætur á Hafnarsvæðinu.  Loks var kynning á E-A skarti, sem er framleiðsla á skartgripum með kínverskum og vestrænum stjörnumerkjum.

Fleiri fréttir