Flugfélagið Ernir hættir áætlunarflugi á Sauðárkróki

Ásgeir örn Þorsteinsson, sölu og markaðsstjóri flugfélagsins Ernis á Sauðárkróki staðfesti í samtali við Feyki rétt í þessu að flugfélagið hafi í hyggju að hætta flugi til og frá Sauðárkróki frá og með 1. janúar næst komandi.

„Já við munum að óbreyttu hætta flugi um áramót. Ástæðan er einfaldlega sú að hið opinbera er hætt að styrkja flug á þessari leið og við sjáum okkur ekki fært að halda þessu úti miðað við farþega fjölda,“ segir Ásgeir.

Ásgeir bætti jafnframt við að ef til þess komi að hið opinbera vilji endurskoða málið sé flugfélagið til í að endurskoða málið.

Í dag er flogið fimm sinnum í viku til og frá Sauðárkróki. Á sunnudögum, tvær ferðir á þriðjudögum, á fimmtudögum og föstudögum.

Fleiri fréttir