Flughálka frá Hofsósi að Ketilási

Á Norðurlandi er hálka eða hálkublettir á flestum vegum. Flughálka er frá Hofsós að Ketilási. Snjóþekja og éljagangur er á Öxnadalsheiði. Norðaustan 3-8 og dálítil él er á Ströndum og Norðurlandi vestra. Frostlaust við sjávarsíðuna, annars vægt frost. Hægari og bjartviðri á morgun, frost 0 til 5 stig.

Veðurhorfur á landinu næstu daga:

Á fimmtudag:
Suðaustan 10-15 m/s og slydda eða rigning SA-til, en gengur í vestan 8-13 með snjókomu V-til. Úrkomulítið NA-lands. Hiti 1 til 6 stig SA-lands, en annars víða vægt frost.

Á föstudag:
Gengur í allhvassa eða hvassa austanátt með snjókomu eða slyddu A-til, en rigningu við ströndina. Dálítil él V-til. Hlýnar í veðri og hiti yfirleitt 0 til 5 stig seinni partinn, en vægt frost í innsveitum.

Á laugardag:
Ákveðin norðaustanátt og úrkomulítið SV-lands, annars slydda eða rigning, einkum eystra, en snjókoma inn til landsins. Hiti yfirleitt 0 til 5 stig.

Á sunnudag og mánudag:
Útlit fyrir norðanátt með ofankomu fyrir norðan, en bjartviðri syðra og kólnandi veður.

Fleiri fréttir