Flughált á Þverárfjalli

Vegir eru mikið til auðir í Húnavatnssýslum en öllu meiri hálka er í Skagafirði. Flughált er á Þverárfjalli og Siglufjarðarvegi. Það er snjóþekja og snjókoma á Öxnadalsheiði og nokkur hálka er á Norðausturlandi.

Það eru hálkublettir á Hellisheiði og í Þrengslum en á Suðurlandi er víða autt þótt sumstaðar sé nokkur hálka, einkum á fáfarnari vegum.

Það er hálka á Holtavörðuheiði og þoka. Eins er hálka á Fróðárheiði, Svínadal og víðar á Vesturlandi. Snjóþekja er á Bröttubrekku en flughált í Þverárhlíð og í Lundarreykjadal. Víða er þó orðið autt á fjölförnum leiðum.

Á Vestfjörðum er víða hálka. Þungfært er á kaflanum frá Brjánslæk að Klettshálsi  en Klettshálsinn ófær.  Snjóþekja er í Djúpinu, verið er að hreinsa Steingrímsfjarðarheiði og eins er mokstur hafinn á Þröskuldum.

Á Austurlandi  er víðast hvar hálka til landsins en mikið autt með ströndinni. Verið er að hreinsa Vopnafjarðarheiði og Háreksstaðaleið. Flughált er á Hróarstunguvegi, Jökuldalsvegi eystri og í Skriðdal. Vegir á Suðausturlandi eru auðir. Mbl.is segir frá þessu.

Fleiri fréttir